Mitt líf

(brynjasif74@hotmail.is)

16.01.2008 00:25:30 / brynja

Nýtt blogg-svæði

Hef ákveðið að flytja mig á nýtt bloggsvæði, finnst þetta ekki vera spennandi lengur, eiginlega bara dead-boring.  Kíktu á www.123.is/brynjasif   Endilega kvittaður í gestabókina í leiðinni, gaman að sjá hverjir eru að kíkja.

Kv. Brynja


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.12.2007 10:10:57 / brynja

HAHAHA

Smá til að hlæja að :D:lol::D Jóla jóla jóla hvað?????

http://www.youtube.com/watch?v=hyk0b0cOogk

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.12.2007 22:44:06 / brynja

Jahá, þá er það á HREINU

Dóttir mín gerði við mig "díl" í gær:lol:.  Hún bað mig að sækja fyrir sig eitthvað (man ekki alveg hvað), ég var eitthvað upptekin og bað hana að bíða og þá sagði hún "ég var að gera eitthvað fyrir þig og þá gerir þú eitthvða fyrir mig" ÓKEY mamma!!!!!.  Ég spurði hana "hvað varst þú að gera fyrir mig?"  Mamma, mannstu það ekki!! ég var að lesa fyrir þig" (hún var s.s að læra heima, var að lesa).  Þá er það á hreinu, barnið er að læra fyrir mömmu sína, ekki fyrir sig:haha:.

» 1 hafa sagt sína skoðun

02.12.2007 22:03:40 / brynja

Jóla jóla jólaskap

Það er komin smá jóla-fílingur í mann hérna.....smá oggu ponsu lítill.  Óðinn er svo drífandi og duglegur að maður bara verður að fylgja á eftir.  Það er búið að taka helling í gegn hérna og setja upp smá jóladót, jólaljós og eitthvað.  Það er bara voða kósý. 

Í gær var nóg að gera, ég var nú samt pínu eitthvað þreytt ennþá eftir veikindin í síðustu viku, en maður verður samt bara að fara á fætur, helst þá fyrir börnin.  Helga Rún fór í bekkjaræfmæli kl 11, átti svo að vera mætt kl 12:40 í Hafnarfjarðarkirkju (eða þar við hliðina) því barnakór Hafnarfjarðarkirkju átti að syngja í Hafnarborg kl 13:20:D og var æfing fyrst (þau gengu svo bara yfir í Hafnarborg þegar þau voru aðeins búin að hita upp).  Kl 14 fórum við svo í afmæli hjá Arnóri Inga sem er sonur Lindu Rögnu vinkonu minnar.  Nóg að gera.  Við hjónin áttum svo að fara í innflutningspartý hjá Ester frænku og Stefáni en ég hafði hreinlega ekki orku í það:S, en við vorum samt búin að redda barnapíu svo við ákv. því að skella okkur bara eitthvað rólegt út að borða.  Eitthvað bara huggulegt;).  Harpa vinkona hringdi svo í mig seinni partinn og spurði mig hvort við vildum kíkja með þeim eitthvað að borða um kvöldið, þá voru þau líka búin að redda pössun, án þess að við ætluðum nokkuð að fara saman, hittist bara svona á, og við enduðum með þeim á Hereford Steikhús á jólahlaðborði, alveg svakalega gott og notalegt.  Það rifjaðist bara upp stemmingin frá Köben þegar við sátum á Buffhásinu, ahhwwwww:D, notalegt.  Kíktum svo aðeins heim til þeirra og vorum svo komin heim um hálf tvö. 

GUÐMUNDUR bróðir er að koma um jólin, júhú:D bara gleði.  Hann lendir á klakanum á aðfangadagsmorgun, bara alveg korter í jól eins og maður segir.   En hann verður til 7.janúar.  Nancy vinkona/kærasta hans kemur 27.des og fer svo með honum heim 7.jan.  Það verður frábært að fá þau.

Læt þetta duga


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.11.2007 00:10:24 / brynja

Jóla jóla

Já, kannski svolítið snemma í því að setja svona Jólaþema á síðuna, ennnnnn, jólin jólin jólin koma brátt......tralla ralla ralla......  eða þannig sko.  

Allt í góðum gír hjá mér, Köben var ÆÐI, H&M var ÆÐI, Óddinn var að sjálfsögðu ÆÐI og Harpa og Siggi ÆÐI.  Allt var bara ÆÐI.  Fengum gott veður, kalt en gott.  Það var gengið mikið, eiginlega bara upp að eyrum enda fór maður mjög þreyttur að sofa á hverju kvöldi og vaknaði eiginlega bara ennþá þreyttur á morgnana, alla vega í fótunum.  En við vorum ekki að drolla í bælinu frameftir morgni, fórum alltaf í morgunmat og honum lauk kl 10 svo við fórum "snemma" á fætur;)  H&M var heimsótt að meðaltali svona 3x á dag, Óðni og Sigga til mikillar gleði8| en við fórum líka á Þjóðminjasafnið og Guinnes-safnið, skoðuðum Höllina eða það sem hægt var að skoða af henni, það voru viðgerðir á henni, gólfið í henni var allt að hrynja.  En það verður sko farin önnur svo ferð einhvern tímann þegar efni og aðstæður leyfa, það er á hreinu, alveg geggjað.  Gott foreldraorlof.

Ég er búin að kaupa ca 16 jólagjafir, júhú, það er bara nokkuð gott og er ég bara nokkuð ánægð með það.  Bara ca 12 gjafir eftir, úfffffffff. Gleði gleði;):D


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2007 22:49:47 / brynja

Lítið að frétta

Það er svo sem ekkert mikið að frétta hér á bæ.  Ekkert mikið að gerast.  Íbúðin okkar er á sölu en það hefur ekkert gerst í þeim málum og við ekkert að stressa okkur.  Við erum ekkert búin að finna annað og vitum í rauninni ekkert hvað við viljum ennþá.  Það er svo hrikalega dýrt að skipta um eign en okkur finnst við verða að komast annað, bæði vegna þess að Hekla greyið á hvergi stað hérna, rúmið hennar er inni í okkar herbergi og dótið hennar í stofunni (sem er kannski í lagi svo sem, en ekki til lengdar) og svo er ég bara að gefast upp á að bera allt uppá 3 hæð, barn og poka og þar að auki má ég það ekki þó svo að ég geri þetta daglega.  Sjúkraþjálfarinn minn sagði að ég yrði að passa mig, ég er með brjósklos á byrjunarstigi og ef ég ætla að halda því í skefjum þá verð ég að passa mig.

Jæja, ætlaði bara rétta að segja HÆ og BÆ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.10.2007 22:29:05 / brynja

Bless elsku frænka

Í dag fylgdi ég henni Jórunni frænku minni til grafar.  Hún tók líf sitt aðfararnótt 23.október:cry:

Mér finnst þetta eitthvað svo óraunverulegt, þó svo að ég hafi ekki verið í sambandi við hana síðustu árin, ekki að ég hafi ekki viljað það, Jórunnar vegna, það voru frekar hennar lifnaðarhættir sem gerðu það að verkum að ég vildi ekki hafa samband, hún var því miður fórnarlamb eiturlyfja.  Jórunn var stóra frænkan mín og var í uppáhaldi hjá mér þegar ég var barn, hún var 7 árum eldri en ég.  Hún var alltaf svo góð við mig og vildi allt fyrir mig gera.  Ég átti frekar erfitt í jarðaförinni, fyrir það fyrsta að sjá hana þarna (það var kistulagning á undan jarðaförinni) en svo fann ég svo til með börnunum hennar þremur, Kristó, Nínu og Eygló litlu.  Þau hafa misst mikið.  Þó svo að mamma þeirra hafi verið í þessum skelfilega eiturlyfjaheimi þá átti hún alltaf mikla ást handa börnunum sínum og nóg af henni.  Þegar hún var edrú (sem gerðist allaf inná milli) þá voru börnin hennar mikið með henni og þau elskuðu hana mikið.   Þau áttu erfitt í dag, sérstaklega stelpurnar, litla Eygló, 7 ára fór að gráta þegar hún sá mömmu sína og grét mikið, þetta varð sennilega raunverulegt fyrir henni á þessari stundu, greyið litla.  Sem betur fer er alveg frábært fólk að hugsa um hana, hún er hjá fósturforeldrum sem eru einstaklega góð.  Nína átti líka erfitt og sennilega Kristófer líka, hann sýndi það ekki eins samt.  Þau hafa misst mikið meira en þetta, elsti bróðir þeirra dó fyrir 3 árum síðan, hann dó á sama hátt og mamma þeirra.  Spáiði í þessu, þetta er svo sorglegt.  Ég vona svo innlega að lífið þeirra verði bara bjart framundan og að þau verði ekki fyrir fleiri áföllum, alla vega ekki í bili.  Þau eru HETJUR.

Jæja, ég ætli ég láti þetta ekki bara duga, en ég auglýsi eftir góðum einstaklingi sem er tilbúinn að taka að sér eitt stykki MÍGRENI í nokkra mánuði, bara svo að ég fá smá pásu.:lol:


» 3 hafa sagt sína skoðun

27.10.2007 00:43:29 / brynja

Óvissa óvissa

Í dag var skipulagsdagur í vinnunni.  Við vorum að vinna með Snillimyndir frá 8-16.  Snillimyndir tilheyra þróunarverkefni sem við erum að vinna, það er inní hugmyndafræði sem heitir Fjölgreindir Howards Gardner http://www.infed.org/thinkers/gardner.htm .  Þessi kenning byggir á 7 greindum sem allir hafa, en greindirnar eru missterkar eða veikar hjá fólki, og við reynum að styrkja veiku greindirnar í gegnum sterku greindirnar.  Ég er til að mynda mjög sterk í Rýmisgreind og Samskiptagreind, man ekki alveg veiku greindirnar mínar, þarf að kanna það.  Með þessum snillimyndum finnum við út hvaða greindir eru sterkar og hvaða greindir veikar hjá hverju barni.

En alla vega, eftir skipulagsdaginn var farið í óvissuferð.  Við áttum að mæta í salinn í leikskólanum kl 16, með samloku, tóma glerkrukku með loki, glæran plastpoka, einnota hanska og brúsa með vatni.  Allir settust í hring á gólfinu og svo voru paraðir 2 og 2 saman.  Við áttum að setja á okkur hanskana og strjúka hvert öðru í framan (bara eitthvað djók),  opna krukkurnar og blása smá umhyggju í krukkurnar og loka þeim, gefa svo þeim sem var með manni sína krukku og svo átti að blása reiðinni í plastpokann og sprengja hann.  Þetta var bara eitthvað djók til að nýta þetta dót sem við áttum að hafa með okkur.   Næst fórum við aftur í hring og þar var svona pakkaleikur þar sem pakkar eru látnir ganga hringinn og svo þegar tónlistinn stoppaði þá átti sá sem var með pakkan að opna hann.  Allir fengu pakka, ég fékk nammi.  Næst var farið í stólaleik, allir að labba í kringum nokkra stóla og svo þegar tónlistinn hætti áttu allir að koma sér uppá stólana, stólunum fækkaði alltaf þar til einn stóll var eftir og ca 7 manns að reyna að komast uppá hann, frekar fyndið.  Þetta átti að snúast um samvinnu en varð bara keppni.  Næst fórum við í rútu sem keyrði okkur niður á íþróttavöllinn hjá Fífunni í Kópavogi.  Þar fórum við út og áttum að taka brauðið með okkur.  Þar stóðum við eins og fávitar, kastandi samlokum á milli okkar (s.s allt dótið sem við áttum að taka með okkur vara bara grín til að rugla okkur eitthvað í ríminu og svo var bara ákv að gera eitthvað með það, bara svona uppá gamanið;).  Aftur fórum við í rútuna sem keyrði okkur á Pizza Hut, þar fengum við að borða eins og við gátum í okkur látið, súpu, salat, brauðstangir, pizzur og ís.  Úfffff, maður var aðs pringa og hafði enga lyst á ísnum.  Þegar maturinn var búinn fórum við enn á ný í rútuna og stoppuðum við fyrir utan Sambíóin í Álfabakka, þar fengum við afhenda miða á bíósýningu í VIP salnum, voða notalegt.  Horfðum á mynd sem heitir The Invation.  Hún var spennandi.  Ekkert smá huggulegt að horfa í hægindastól.  Verst að maður var svo saddur og hafði ekki lyst af poppinu og gosinu sem var þarna í boði.  Deginum lauk svo eftir þessa sýningu.  Alveg frábær dagur og ég skemmtil mér æðislega.

Læt þetta duga.  bæjó


» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 22:46:06 / brynja

Hvert fór tíminn??

Tíminn er allt of fljótur að líða, maður er varla búin að snúa sér við þá er tíminn bara floginn:( .  Guðmundur bróðir kom hingað í heimsókn og ætlaði að vera í 3 vikur, og svo bara allt í einu er hann að fara á morgun, ég bara skil þetta ekki:S.  Vonandi kemst hann aftur til okkar um jólin, hann ætlar að reyna það, svo það er bara að krossleggja fingur og nuða í honum stanslaust þangað til, hehe.

Í gær hittist öll fjölskyldan mín, mömmu megin, heima hjá Esther systir mömmu, s.s amma, systkini mömmu, makar, börn og fjölskyldur þeirra.  Við komum öll með eitthvað að borða og áttum frábæra stund saman.  Allir að hitta Guðmund og kveðja hann.  Þetta var svaka skemmtilegt. 

Ester Gústudóttir, Þóra Estherardóttir og ég Helgudóttir.  Mömmur okkar eru systur.

 

Svo bættist Axel, bróðir Þóru, við og hann er alltaf jafn-fallegur þessi elska, hehe.  Anna Sigga (bróðurdóttir mömmu) er þarna að gera hornin á hann.

en þar til næst, bæjó;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 23:02:48 / brynja

11 tíma bíltúr

Í morgun lögðum við af stað um kl níu, fórum með Helgu Rún til frænku hennar og náðum í Guðmund bróðir.  Við stefndum á suðurlandið.  Við keyrðum nánast í einum rykk  að Dyrhólaey.  Guðmundur hefur gaman af að taka myndir svo ferðin var svona mest gerð til að hann gæti tekið myndir af fallega landinu okkar.  Við eyddum góðum tíma þar og fórum svo áfram til Víkur í Mýrdal.  Fengum okkur að borða þar og fórum svo tilbaka.  Á leiðinni heim stoppuðum við oftar og Guðmundur tók fleiri myndir, af fossum, húsum, fólki, bara öllu.  Fórum svo í áttina að Þórsmörk og skoðuðum Gýgjökul sem er skriðjökull sem gengur út af Eyjafjallajökli, geggjað flott.  Við enduðum svo í Íslenskri Kjötsúpu hjá mömmu, eftir 11 tíma ferðalag.  Hekla Sif var með okkur og hún er bara draumur í dós þessi stelpa, það heyrðist ekki múkk í minni, ekkert kvart og kvein, nema alveg í blálokin og þá vorum við komin í Hafnarfjörð.  En það eru myndir hérna í albúminu, undir Myndir frá Guðmundi. 

bless


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 17:10:22 / brynja

Frábær sýning

Í gærkvöldi skelltum við hjónin okkur ásamt mömmu, Reyni og Guðmundi í leikhús, fórum að sjá Laddi 6-tugur.  Þetta er snilldar sýning, mæli með að þeir sem ekki eru búnir að sjá hana drífi sig.  Ég hló alveg svakalega og allir sem voru þarna.  Bara geggjað.

Stelpurnar mínar eru nýbúnar að eiga afmæli, Helga Rún er orðin 6 ára skvísa, búin að missa 6 tennur og komin með alla 6-ára-jaxlana.  Hún er orðin læs og finnst voða gaman í skólanum.  Hekla Sif er orðin 1 árs og er byrjuð að ganga um allt.  Hún er vargur og lætur ekki vaða yfir sig, eða reynir það að minnsta kosti. 

Af mér sjálfri er allt gott að frétta.  Mér líður vel í vinnunni og er ánægð með að hafa farið aftur á Núp, hvað sem verður seinna.  Langar alltaf að færa mig í Hafnarfjörðinn en ekki strax samt.  Kannski bara þegar Hekla Sif fær leikskólapláss í firðinum.

Verið góð við hvert annað og virðið hvert annað, þá gengur lífið vel.

bæjó


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 17:13:42 / brynja

ÍSLAND Í DAG

Það má segja að Ísland í dag sé ekki sama "safe" landið og var fyrir nokkrum árum.  Barnaníðingar geta bara flúið land eins og ekkert sé, bara hoppa uppí næstu vél og ákveða að vera ekki á landinu þegar á að dæma í málum þeirra (sbr. Róbert Árni), hvaða bull er það??  Af hverju virðast íslensk stjórnvöld hafa svona lítil völd, t.d. að geta ekki breytt hegningarlögum varðandi þessa aula, þeir fá nokkra mánuði í fangelsi fyrir að skemma líf fjölda barna.  T.d. barnaníðingurinn sem býr hérna á móti okkur, hann fékk þyngsta dóm sem hefur verið gefin á barnaníðing, EITT ÁR, HALLÓ8|.   Það þarf eitthvað að fara að endurskoða þessi mál.   Ég stend upp fyrir KOMPÁSI og hrópa fjórfalt húrra fyrir þeim:D.  Mér finnst þessir þættir SNILLD. 

Svo stend ég líka upp fyrir Lögreglunni og finnst þeir eiga margalt hrós skilið;).  Frábærlega unnið hjá þeim, þetta mál með smyglið á Fáskrúðsfirði.  Snilld alveg hreint.  Vá hvað þetta hefur verið vel unnið hjá þeim, þetta náðist ekki að leka neins staðar út hjá þeim, eins og til fjölmiðla og þannig.  Bara geggjað. Þetta hefði aldrei náðst ef þeir hefðu ekki þagað svona vel yfir þessu.  Ísland er svo lítið og það hlýtur að vera rosalega mikið álag að vinna svona undirbúning þannig að allir sem koma að þessu nái að halda þessu fyrir sig og tala ekki um þetta svo þetta leki ekki út.  BARA FRÁBÆRT.

Næsta mál á dagskrá, GUÐMUNDUR BRÓÐIR ER AÐ KOMA, JIBBBBBÍÍÍÍÍÍÍÍ:D8);).  Ég og Helga Rún erum ofurspenntar yfir þessu, okkur hlakkar svo til að fá hann til okkar.  Helga Rún er mest spennt yfir að hann geti loksins komið í afmælið hennar, hehe, á þessum aldri er afmæli svona "vinatákn".  Hún er líka spennt því hún veit að GUðmundur kemur með skó með hjólum undir, það er rosa spennandi.  Hún er búin að vera að suða um þetta í allt sumar, greyið. 

En jæja, best að hætta þessu og fara að gera eitthvað.

Sigga Ö, ef þú lest þetta, vonandi líður þér vel, við söknum þín í vinnunni, vonandi grær öxlin þín fljótt og vel;).

Over and out.


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2007 23:43:22 / brynja

VÁ, TÍMINN ER AÐ RUGLAST

Ég er alveg sannfærð að tíminn er að ruglast í rýminu, það getur bara ekki verið liðið eitt ár frá því að litla snúllan mín kom í heiminn, úfff,  EITT ÁR.  Hún hefur mikinn persónuleika, sýnir alveg skap og veit alveg hvað hún vill.  Finnst systir sín ansi skemmtileg í fjarlægð, en er reið þegar sú eldri kemur að henni og ætlar að fara að halda á henni, þá heyrist í minni, NEI TAKK, nema í öskur-útgáfunni.  Gaman að þessum krílum.  Hún er alveg að rembast við að þora að taka skrefin, það hafa komið nokkur af og til.

Jæja nóg af monti, bæjó


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 20:30:07 / brynja

hæ hæ

Þá er ég hætt í leikskólanum Sjálandi.  Ég er alls ekki hjallastefnu-manneskja svo ég ákvað bara að hætta.  Ég byrja aftur á Núpi eftir helgina og hlakka ég mikið til að fara þangað aftur, ég ætla að prufa að taka að mér sérkennslu.

Hef svo sem ekkert að segja, svo é glæt þetta duga.

sí jú:D


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.09.2007 23:13:50 / brynja

Skemmtilegt, eða þannig

Halló halló

Hérna sit ég, búin að sofa meira og minna í dag, var alveg rotuð til hálf eitt (e.h.) og svo í sófanum eftir það dottandi yfir sjónvarpinu.  Einhver pest náði mér, ekki gott og ekki gaman.  Finnst alveg svakalega leiðinlegt að liggja fyrir og líða svona illa, hálsbólga, kvef, hausverkur, beinverkir, ojojoj.  Gott að eiga verkjatöflur á svona tímum, þær alla vega slá á beinverkina og aðeins á hausverkinn.  En mér líður samt betur núna en í gærkvöldi svo vonandi verð ég laus við þetta bara á morgun og komist síðasta daginn minn í vinnunni á föstudaginn.  Leiðinlegt að gera ekki klárað síðustu dagana.  En maður ræður þessu víst ekki.

Ég byrja í næstu viku á Núpi aftur, fer í sérkennsluna, hlakka til að prufa það.  Mamma og tengdó ætla að hafa Hekluna á meðan, skipta með sér vikum, s.s viku og viku.  En svo á ég von á að hún komist annað hvort á Núp eða nýjan leikskóla sem heitir Baugur uppúr áramótum.  Ég þarf bara að taka ákvörðun um það hvorn staðinn ég vill fyrir hana.

Bæjó í bili.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Minningasíður
Fallegt Viðtal við Guð
Danmerkurferð
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 858 dögum